Stýringar
Stýringar
Við stjórnum öllu sem hægt er að kveikja á!
Á síðari árum hefur búnaður og aðstaða í fundarherbergjum hefur tekið miklum framförum. Í nútíma fundarherbergjum er nú boðið í meira mæli að hönnuð séu sérstök hljóð- og myndsýningarkerfi sem tengd eru við mismunandi einingar t.d ýmis afspilunartæki (DVD / VCR), skjávarpa, LCD eða plasma skjái, gluggatjöld, ljós og hljóðbúnað ýmiskonar.
Búnaðinum öllum er svo hægt að stjórna með snertiskjám sem útfærðir eru með einfaldri skjámynd þannig að notandi á auðvelt með að framkvæma helstu aðgerðir.
Í fundarherbergjum er farið að skipta meira máli að geta stjórnað fundinum á sem einfaldastan og skilvirkastan hátt.
Exton býður upp á stýringar frá AMX og Extron sem geta bæði verið skjáir á fundarborði þar sem allar aðgerðir eru birtar myndrænt eða stýripanelar sem eru felldir inn í eða festir á vegg og eru einfaldari í allri notkun.
Dæmi um aðgerðir sem hægt er að framkvæma er að hægt er að kalla niður sýningartjald og kveikja á skjávarpa með einum hnappi, hægt er að auka og minnka lýsingu í herbergi, kalla niður gluggatjöld, kveikja á DVD spilara og stjórna hljóði.
Stýringar í fundarherbergi geta vissulega einfaldað hlutina. Kynntu þér málið hjá okkur.

