Sýningartjöld
Sýningartjöld
Við komum þér á hvíta tjaldið!
Mælt er með því að nota sýningartjald þegar notaður er skjávarpi í fundarherbergi. Mynd sem varpað er beint á vegg nær aldrei sömu skerpu og litum eins og mynd sem varpað er á vandað sýningartjald.
Huga þarf að útfærslu á tjaldinu sem á að nota. Fáanleg eru tjöld sem mögulegt er að fella inn í stokk, eru hengd á vegg, neðan í loft eða á þrífæti.
Tjöldin eru ýmist rafdrifin eða dregin niður handvirkt. Áferð á tjaldinu skiptir einnig máli og til eru útgáfur sem leitast við að ná sem skarpastri mynd eða koma litum til skila á sem bestan máta.
Exton selur sýningartjöld frá Da-Lite.

