Varpar og skjáir
Varpar og skjáir
Myndarlegur búnaður
Miklu máli skiptir að velja réttan skjá eða skjávarpa í fundarherbergi. Atriði sem hafa þarf í huga þegar skjávarpi er valinn eru t.d upplausn og birtustig, á skjávarpinn að vera með innbyggðum hátölurum eða nettengingu og á varpinn að vera HD samhæfanlegur.
Nýjustu varpana er hægt að stilla þannig að þeir slökkvi á sér á ákveðnum tíma sem eykur peruendingu og eins getur varpinn sjálfkrafa sent öll villuskilaboð sem koma upp í tölvupósti til umsjónarmanns. Exton selur og þjónustar skjávarpa frá Hitachi og Barco.
Það sem hafa ber í huga við val á LCD eða Plasmaskjá felst aðallega í stærðinni á skjánum sem á að setja í herbergið. Ef ætlunin er að vera með 32 ? 37” skjá í herberginu er LCD að mörgu leyti betri kostur en ef ætlunin er að vera með stærri skjá t.d yfir 40” eru vönduð plasmasjónvörp að mörgu leyti betri kostur.
Exton selur LCD og Plasma skjái frá LG Electronics, Barco og Hitachi.

