Sviðsvagnar
StagePartner Sviðsvagnar
Fljótleg og hagkvæm lausn
Stagepartner vagnarnir eru hagkvæmir þar sem koma þarf upp sviði á skömmum tíma. Vagnarnir eru í tveimur stærðum og henta í stór sem smá verkefni.
Vagnarnir koma tilbúnir með sviðsgólfi og upphengibúnaði fyrir hljóð- og ljós.
Þeir henta jafnt fyrir tónleika, fyrirtækjaviðburði, bæjarskemmtanir, sýningar og íþróttaviðburði.
Vinnusparnaður er töluverður miðað við hefðbundin svið og eldri gerðir vagna.
Vagnana er hægt að fá hráa og uppsetta eða hlaðna hljóð- og ljósabúnaði sem hentar hvaða viðburði sem er.
Búnaðinn má flytja að hluta eða öllu leyti í vögnunum og spara þannig flutningskostnað.
FreeStage Medium 8x6m
Minni vagninn er 48m2 undir þaki en sviðið er stækkanlegt með pöllum. Það tekur 1 mann aðeins um 30 mínútur að gera vagninn kláran fyrir tæknimenn.
Hljóð- og ljósabúnaði er komið fyrir í eðlilegri vinnuhæð og hann svo hífður upp með innbyggðum lyftubúnaði.
FreeStage Large 10x8m
Stærri vagninn er 80m2 undir þaki og er sviðið stækkanlegt með pöllum. Það tekur 2 menn aðeins um 90 mínútur að gera vagninn kláran fyrir tæknimenn.
Hljóð- og ljósabúnaði er komið fyrir í eðlilegri vinnuhæð og hann svo hífður upp með innbyggðum lyftubúnaði.
Smelltu hér til að ná í kynningu á vögnunum og tæknilegar upplýsingar.

