Viðburðir
Fyrirtækjaviðburðir
Fyrirtækjaviðburðir hafa færst mjög í vöxt undanfarin misseri
Fyrirtækjaviðburðir hafa færst mjög í vöxt undanfarin misseri enda kalla fjölmörg tilefni á þjónustu okkar. Má þar nefna blaðamannafundi, fjárfestakynningar, vígslur og frumsýningar, galaveislur og árshátíðir.
Helstu verkefni okkar á þessu sviði hafa verið viðburðir fyrir Landsbankann, Glitni, Símann, Kaupþing, TM, Alcoa, Samtök iðnaðarins, Portus, Samsung, Cisco, British Telecom, N1, Ford og Coca Cola.
Þessi verkefni vinnum við ýmist beint eða fyrir framleiðendur og fyrirtæki í viðburðarstjórnun eins og t.d. Truenorth, Basecamp, Practical, Senu og Hr. Örlyg.

