Lausnir
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið semur við Exton
Samið við Exton um hljóðkerfi og sviðslýsingu fyrir Tónlistar- og ráðstefnuhúsið.
Samið hefur verið við Exton um hljóðkerfi og sviðslýsingu fyrir Tónlistar- og ráðstefnuhúsið við Austurhöfn. Verkefnið er hið umfangsmesta sinnar tegundar hérlendis til þessa en um er að ræða kerfi fyrir alla fjóra sali hússins.
„Mikill metnaður einkennir þær lausnir sem boðnar voru út og ljóst er að húsið verður búið tæknilausnum í hæsta gæðaflokki. Hljóðkerfi og tengdur búnaður koma einna helst frá Meyer Sound og Yamaha Pro Audio. Meyer Sound hljóðkerfi er að finna í mörgum af helstu tónlistarhúsum heims og nægir þar nefna Fílharmóníuna í Berlín og Carnegie Hall í New York. Búnaður fyrir sviðslýsingu kemur að mestu frá Electronic Theater Controls og t.d. sambærilegur við búnað í Óperunni í Kaupmannahöfn og Barbican í London,“ segir Sverrir Hreiðarsson, framkvæmdastjóri Exton.
Vinna við lokahönnun kerfisins fer nú á fullt skrið en hafist verður handa við samsetningu og lagnavinnu fljótlega eftir áramót. Verklok eru áætluð í ágúst 2009.
„Verkefnið er gríðarlega umfangsmikið og til marks um það má nefna að kaplarnir sem fara í að tengja búnaðinn eru nálægt 200 km,“ bætir Sverrir við. „Það er því ljóst að félagið þarf að herja á nýtt starfsfólk vegna þessa.“
Exton færði Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu táknræna gjöf við þetta tilefni. Það voru fulltrúar Portus sem tóku við hljóðlistaverkinu „Traps“ eftir Finnboga Pétursson. Verkið, sem er hljóðgildra úr stáli, fangar ákveðnar tíðnir úr umhverfinu sem heyra má með því að leggja eyrun við líkt og þekkist með kuðunga. Verkið tengist því bæði hljóðlist og hafinu og á vel heima í Tónlistarhúsinu við sjávarsíðuna.

