Lausnir
Reykjavíkurborg flytur í Höfðatorg
Reykjavíkurborg hefur samið við Exton um allar hljóð- og myndlausnir í ný húsakynni helstu stofnana borgarinnar í Höfðatorgi.
Um er að ræða rúmlega 20 fundarherbergi, kennslustofur, mötuneyti og sérstakt ráðsherbergi þar sem kjörnir fulltrúar og aðrir meðlimir í nefndum og ráðum borgarinnar funda með embættismönnum.
Verkið var boðið út og átti Exton lægsta boð, rúmar 30 mkr.

