Lausnir
Kynning á grandMA2 ljósaborði frá MA lighting
Exton var með kynningu á GrandMA2 ljósaborðum í síðustu viku og fluttum við inn af því tilefni eitt stk GrandMA2 light borð. Við sendum út boð á facebook síðu okkar og var mjög góð mæting og var það mál manna að þarna væri komið frábær ljósastýring.
Eins og flestir vita sem eitthvað vita þá erum við að tala um “rolllsinn” í ljósastýringum sem hefur verið að sölsa undir sig Pro markaðinn á síðustu arum. GrandMA2 er að taka við af GrandMA 1 seríunni sem t.a.m. U2, Radiohead, Danska óperan og Royal Shakespear theater eru að nota.
Nánari tilvísanir í notkunaraðila o.fl hér:
http://www.malighting.com/news.html
Það sem er skemmtilegast við þessa stýringu er að öll vörulínan frá því að vera GrandMA OnPC og upp í GrandMA fullsize er að keyra á sama hugbúnaði þannig að þótt budget sé lágt, þá hefur þú kost á að vera með heimsklassa stýringu.
Hægt er að fá borðið með allt upp í 5 snerti skjám + 1 “multitouch” snertiskjá, og 30 mótorstrýrðum faderum svo eitthvað sé nefnt. Nánari upplýsingar um GrandMA2 hér: http://www.malighting.com/43.0.html?id=43&&L
Ekki má gleyma GrandMA3D sem er frír visualiser sem hægt er að niðurhala af netinu. Það gerir að verkum að með einni þokkalegri fartölvu er hægt að forrita borðin og sjá í visualiser. ATH bæði GrandMA ONPC og GrandMA3D eru frí á netinu.
Hægt er að hlaða niður öllum hugbúnaði frá MA lighting frítt á eftirfarandi link: http://www.malighting.com/support.html?&L
Eins og áður sagði, þá fluttum við eitt GrandMA2 light í tilefni kynningarinnar og verður það borð uppsett hjá okkur í einhvern tíma. Öllum er velkomið að kíkja við og “taka í “ gripinn.

