Lausnir
Harpa er í heimsklassa
- segir Gunnar Gunnarsson hjá Exton, sem sá um allan tæknibúnað á sviði hljóðs, ljóss og myndar í tónlistarhöllinni
Hljómurinn í Hörpu veltur ekki aðeins á listamönnunum, sem þar leika, eða náttúrulegum hljómburði salarkynnanna, því þar er einnig fullkomnasta hljóð-, ljós- og sýningakerfi landsins og þó víðar væri leitað. „Þetta er umfangsmesta verkefni okkar til þessa,“ segir Gunnar Gunnarsson verkefnastjóri Exton, sem hafði veg og vanda af hönnun og uppsetningu tæknibúnaðarins. „Við lögðum gríðarlega vinnu í þetta, en afraksturinn er líka einstakur. Harpa er ekki aðeins glæstasta tónlistarhöll Norðurlanda, hún er í heimsklassa.“
Exton hefur um langt skeið haft afgerandi forystu á þessu sviði hérlendis, en atti kappi við erlenda keppinauta um þetta risaverkefni og hafði betur. „Ætli við höfum ekki varið um tveimur árum í undirbúning þess, þar af einum meðgöngutíma í tæknihönnunina eina,“ segir Gunnar. Það var enda að mörgu að hyggja, salirnir margir og kröfurnar miklar. „Það voru sex rafvirkjar á okkar snærum, sem drógu tæpa 300 hundrað kílómetra af kapli í húsið, það eru 5 tonn af hátölurum bara í aðalsalnum og 400 ljóskastarar, hér eru 3 bíóskjávarpar af fullkomnustu gerð, sýningartjöldin eru um 250 m², í húsinu eru 70 upplýsinga- og auglýsingaskjáir, það eru 30 tölvur sem stýra öllum græjunum og svo mætti lengi telja.“
Sumir hafa gagnrýnt Hörpu fyrir að kosta of mikið, er svo fullkominn tækjabúnaður ekki dýr? „Jú, hann er dýr í innkaupum, en þá þurfa menn að horfa til þess að í húsi af þessu tagi þýðir ekki að gera neinar málamiðlanir, hér dugar aðeins hið besta. Hins vegar segir innkaupaverðið ekki alla söguna, því vandaður búnaður af þessu tagi hefur mjög langan líftíma; 20-25 ár er alveg raunhæfur tími í því og þá má selja þau áfram. Heildarkostnaðurinn er því alveg skaplegur.“
Verða öll verkefni Exton í framtíðinni ekki lítilfjörleg hjá þessu þrekvirki? „Við erum sjálfsagt ekki að fá annað verkefni að þessari stærðargráðu næstu árin,“ segir Gunnar og hlær, en bætir þó við að með þessa reynslu í farteskinu komi vel til greina að leita samsvarandi verkefna erlendis. „En Exton hefur alla tíð stært sig af því að það sé ekkert verkefni of stórt og ekkert verkefni of lítið. Við höfum sannað það með Hörpu að ekkert verkefni er of stórt, en á meðan vorum við líka að sanna hitt, leigja út hljóðnema á ættarmót og hljóðkerfi á skólaböll, setja upp skjávarpa í fundarsölum fyrirtækja og þess háttar. Það heldur bara áfram.“
Kröfurnar eru þó aðrar? „Nei, eiginlega ekki. Við höfum alla tíð gert miklar kröfur til sjálfra okkar og kröfur viðskiptavinanna hafa aukist jafnt og þétt. Fólk hefur vanist úrvalsgæðum í hljóð og mynd og lætur ekki bjóða sér neitt annað. Við svörum því. Þær kröfur eiga ekki eftir að minnka eftir að fólk kynnist upplifuninni í Hörpu.“

