Lausnir

Opnun Hörpu

19.5.2011


Um síðustu helgi opnaði Tónlistar- og ráðstefnu húsið Harpa formlega.

Hátíðardagskráin í Eldborg var afar fjölbreytt og allur tæknibúnaður, hljóð, ljós og myndbúnaður stóðst fullkomlega þær væntingar sem gerðar voru.
Einnig voru rokktónleikar í Silfurbergi á laugardeginum sem tókust mjög vel.

Helgin endaði síðan á mikilli barnadagskrá, má þar nefna að Sinfóníuhljómsveit Íslands spilaði fyrir yngstu kynslóðina, sem skemmti sér konunglega yfir söguni um hann Maxa Mús.

Óhætt er að segja að öll helgin hafi tekist afskapleg vel

Úrdráttur úr umfjöllum Jónasar Sen í Fréttablaðinu 17.maí.2011:

Hér er ekki pláss til að nefna hvert einasta atriði þessara miklu tónleika. Ég verð þó að fjalla um rafmögnuðu tónlistina, sem var síðust fyrir seinna hléið. Gusgus spilaði tvö lög, Dikta sömuleiðis og svo söng Páll Óskar Það geta ekki allir verið gordjöss ásamt Memfismafíunni. Það verður að segjast eins og er að rokkið hljómaði alveg frábærlega í salnum! Bassinn var einstaklega hljómmikill og breiður, og tónarnir fyrir ofan tærir og fallegir.

Í það heila var flutningurinn glæsilegur og hljómburðurinn var stórfenglegur! Það er ljóst að Harpa lofar virkilega góðu.

 

 

Þú ert hér

Um Exton

Fréttir

Helstu fréttir af félaginu.
 

Staðsetning

Smelltu hér til að sjá hvar við erum til húsa.
 

Starfsmenn

Við erum ávallt til þjónustu reiðubúin.
 

Verkefni

Helstu verkefni sem við höfum komið að.
 

sub-cat-banner-barricade


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.