Lausnir
Glitnir endurnýjar útibú
Exton hefur á síðustu mánuðum sett upp hljóð og myndbúnað í útibúum Glitnis eftir því sem þau eru endurnýjuð.
Í útibúunum eru settir upp skjáir hljóðkerfi og stjórnbúnaður þannig að starfsmenn þurfi ekki að hafa áhyggjur af tækninni við notkun búnaðarins eða skipta sér af honum dags daglega. Það er gert með því að setja upp AMX stjórnkerfi sem sér um að kveikja og slökkva á búnaði eftir klukku og því hvort um virkan dag eða frídag er að ræða.

