Lausnir
Nýtt landkynningarsvæði opnað í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Kristján L. Möller samgönguráðherra opnaði formlega í gær nýtt landkynningarsvæði í suðurbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Þar er farþegum sem eru að ferðast til landa utan Schengen gefinn kostur á því að líta glæsilega kynningarmynd um Ísland augum.

Í upphafi sýningar er líkt og farþegar takist á loft frá flugstöðinni og leggi í flugferð um landið. Þeir upplifa mikla náttúrufegurð og viðáttutilfinningu. Kristján L. Möller , samgönguráðherra, lýsti ánægju sinni með framtakið og sagði það vera mikilvægan lið í landkynningu fyrir Ísland.
Verkefnið er samstarfsverkefni Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar ohf. og landkynningarverkefnisins Iceland Naturally. Framleiðandi myndarinnar er fyrirtækið Gagarín og Karl Óskarsson annaðist kvikmyndatöku. Árni Páll Jóhannsson er hönnuður sýningar og Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld samdi tónlistina.

Exton sá um val búnaðar og uppsetningu hans. Sýningaflöturinn er glerrúða sem mynd er varpað á aftanfrá og er rúðan ekki bara einn stærsti sýningaflötur landsins heldur er glerið sjálft stærsta einstaka rúðan á landinu.
Myndvarpi er af gerðinni Barco FLM HD14 sem er 14000 Lumena varpi í fullri HD upplausn (1920x1080) og er þetta öflugasti varpi á landinu.
Öflugt hljóðkerfi er að sjálfsögðu með þessu og er það af gerðinni MeyerSound og öllu er svo stjórnað með AMX stjórnkerfi.

