Leiga

Megavika, risahelgi, hvað svo?!!

Allt að verða vitlaust?

10.3.2008

Siðasta helgi gekk undir nafninu "Risahelgin" hjá starfsmönnum leigudeildar.

Þrjú verkefni stóðu þar hæst; Árshátíð Landsbankans í Egilshöll, Árshátíð Símans í Laugardalshöll (nýja sal) og Samfés 2008 í Laugardalshöll (gamla sal).
Einnig önnuðumst við lýsingu og hljóð í undanúrslitaþáttum Gettu Betur í Smáralind og ýmislegt annað minna í sniðum.

Undirbúningur og skipulagnig hófst fyrir tveimur mánuðum með hönnun, teiknivinnu, verkaskiptingu og aðföngum búnaðar.
M.a. leigðum við inn ljósabúnað frá Danmörku sem og truss, mótora, ljósabúnað og hljóðbúnað frá Sagafilm, EB-Kerfum og Nýherja.

Uppsetning hófst síðan á mánudegi, og var unnið dag og nótt fram á laugardag.

Í Egilshöll var árshátið Landsbankans, þeirra stærsta til þessa, eða um 2.200 gestir. Verkstjórn var í höndum Truenorth, og verkefnastjóri Exton; Agnar Hermannsson.

LI_1

Þetta var að mörgu leiti tæknileg áskorun fyrir okkur, þar sem þetta var í fyrsta sinn sem settur er upp atburður að þessari stærðargráðu þ.e.a.s. "In the round". Með "in the round" er átt við að sviðið er haft í miðjuni og áhorfendur allt um kring.

Hönnun sviðs, lýsingar og verkefnastjórn Agnar Hermannsson, hljóð Ívar Ragnarsson og Finnur Ragnasson, myndstjórn Helgi Jóhannesson og sviðsstjórn Guðmundur Erlingsson.

LI_2

Í nýja sal Laugardalshallarinnar var árshátið Símans, einnig unnið fyrir Truenorth. Verkefnastjórn Exton, Hrannar Hafsteinsson, lýsing Gísli Berg, hljóð Ingvar Jónsson og Hróbjartur Róbertsson, myndstjórn Björn Helgason og sviðsstjóri Ingólfur Magnússon.

Í gamla sal Hallarinnar fór svo fram SAMFÉS 2008, en Samfés eru samtök félagsmiðstöðva.

Á föstudagskvöldið var stórdansleikur Samfés og komu m.a. fram Á móti sól og SIGN. Á laugardeginum var hæfileikakeppni Samfés.

Verkefnastjórn Björgvin Sigvaldason og Steinar Snæbjörnsson. Hljóð Nick Stagg og Björgvin Sigvaldason, lýsing Árni Benediktsson.

Þar sem allir þessir salir áttu svo að vera tilbúnir undir hefðbundna íþróttastarfsemi á sunnudagsmorgni þurfti her manna til að pakka og koma öllum þessum búnaði úr húsunum og var því lokið um, hádegisbil á sunnudegi.

Alls komu að þessum verkum allir starfsmenn leigudeildar, sem og fjöldinn allur af verktökum eða alls um hundrað manns.
Kunnum við öllum bestu þakkir fyrir áfallalausa og frábæra helgi.

Og fjörið heldur áfram; næsta helgi - Sálin hans Jóns míns og árshátið KB! Hvoru tveggja í sölum Laugardalshallar.

Einnig má geta að undirbúningur fyri tónleika Eric Clapton er þegar hafinn!



 

Þú ert hér

sub-cat-banner-exton

Um Exton

Fréttir

Helstu fréttir af félaginu.
 

Staðsetning

Smelltu hér til að sjá hvar við erum til húsa.
 

Starfsmenn

Við erum ávallt til þjónustu reiðubúin.
 

Verkefni

Helstu verkefni sem við höfum komið að.
 



Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.