Leiga
Sálin, tónlistarverðlaun og Sgt Peppers
3 dæmi um verkefni síðustu vikna.
Þann 14. mars hélt Sálin Hans Jóns míns upp á 20 ára starfsafmæli sitt, með stórtónleikum í Laugardalshöll.
Að sjálfsögðu var haft samband við Exton til að sjá um tækni- og sjónrænan þátt tónleikana.

Freyr Vilhjálmsson, ljósamaður Sálarinar til margra ára hannaði lýsingu, svið og myndrænan þátt tónleikana. Var sviðið byggt fyrir framan fastasvið hallarinnar, gamla sviðsopinu lokað með baklýstum videoskjá 14x8 metra.
Á tjaldið lýsti 12000 ansi lumens Barco varpi.
Fyrir ofan sviðið var flogið 2 sporöskjulaga trussum, og megnið að
ljóskösturum og LEDi hengt þar. (60 Martin hreyfiljós og 30 Thomas Pixelline)
Einnig frumsýndum við stærstu diskokúlu landsins í einu af lokalögum tónleikana, en hún er einn meter í þvermál.

Einnig var byggður fram rani inn á mitt gólf hallarinnar, svo að stjörnurnar gætu spígsporað þar í návígi við aðdáendur sína.
Umsjón og uppsetning ljósabúnaðar var í höndum Agnars Hermanssonar.
Hljóðkerfið var Meyer Milo sem svo oft áður í Laugardalshöll, mixer í sal 56 rása Midas H3000, og monitormixað á 52 rása Yamaha PM3500M. Einnig var notaður Allen & Heath GL3300 mixer til að mixa Gospelkór Reykjavíkur.
Hljóðmenn voru Sveinn Ómar Grétarsson, Ivar Ragnarsson, Finnur Ragnarsson og Andri Jóhannesson.
------------------------
Frá upphafi hefur Exton ehf verið einn af bakhjörlum Íslensku tónlistarverðlaunana.
Verðlaunin voru afhent í Borgarleikhúsinu þann 18.3. Tæknimenn Exton sáu um allt hljóð í sal og sviðsskiptingar. Hljóðmenn Ivar Ragnarsson og Finnur Ragnarsson, sviðsmenn Kjartan Orri og Bernt Erik Andreassen. Framkvæmdastjórn tónlistaverðlauna; Pétur Grétarsson.
-----------------------
Exton ehf annaðist öll tæknimál á tónleikunum; "Sgt Peppers 30 ára", í Háskólabíói. Tónleikahaldari var Ofurhetjur ehf. Lýsing Agnar Hermannsson, myndstjórn Helgi Jóhannesson, Hljóð Ingvar Jónsson og Nick Stagg.

