Leiga

Al Gore í Háskólabíói.

Al Gore hélt sinn heimsfræga fyrirlestur um hlýnun jarðar í Háskólabíói.

13.4.2008

Glitnir bauð uppá þennan viðburð í samvinnu við Háskóla Íslands og forseta Íslands. Exton annaðist tæknilega þáttinn, og setti upp hljóð, lýsingu og myndkerfi.

al gore (c) Valgarður Gíslason

Fyrir valinu urðu 12 Meyer Melodie linearray hátalarar fyrir hljóðið, en það hentar einstaklega vel í þessum sal. Talað mál í bindismæk er leikur einn, og hvert sæti í húsinu með sama hljóð. Einnig voru notaðir 8 stk Meyer MM-4XP hátalarar sem sk frontfill, en það eru hátalara á sviðsbrún, fyrir þá sem næst sitja og kunna að vera fyrir utan aðalhátalarakerfið.

Al Gore-(c)Sigurjon Ragnar

Á varaforsetann notuðum við DPA 4080BM cardoit smáhljóðnema, frábær nýr hljóðnemi frá DPA, miklu minni hætta á feedbakki en áður þekkist í sambærilegum hljóðnemum.

Mixer Yamaha LS-9, 16 rása digital borð.

Þess má geta að tveir síðasttöldu hlutirnir ásamt XP-4XP eru nýir á leigulager Exton.

Fyrirlesturinn byggir á powerpoint skyggnum, og til þess að koma þeim sem best á framfæri notuðum við Barco SLM R12+ 12000 Ansi Lumens myndvarpa.

 

Þú ert hér

sub-cat-banner-barricade

Um Exton

Fréttir

Helstu fréttir af félaginu.
 

Staðsetning

Smelltu hér til að sjá hvar við erum til húsa.
 

Starfsmenn

Við erum ávallt til þjónustu reiðubúin.
 

Verkefni

Helstu verkefni sem við höfum komið að.
 



Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.