Leiga

Stærstu tónleikar Íslandssögunnar.

3.7.2008

Á bilinu 25-35 þúsund áhorfendur voru samankomnir í Laugardal þann 28. júní s.l. til að njóta tónlistar Sigur rósar og Bjarkar, undir yfirskriftinni Náttúra, og má segja að Reykjavík hafi skartað sínu fegursta, heiðríkja en þó örlítill kuldi er líða tók á kvöldið.

Bæði Björk og Sigur rós eru á heimstúrum um þessar mundir, Björk í lokaáfanga en Sigur rós hefur nýlokið fyrsta áfanga.

Listamennirnir komu með allt sitt hafurtask ásamt mannskap, eða um 80 manns og 10 tonn af búnaði.

Undirbúningur og skipulag hófst fyrir 2 mánuðum og voru skoðaðir ýmsir staðir fyrir tónleikahaldið. Fyrir 4 vikum var svo ákveðið að halda tónleikana í brekkunni við Þvottalaugarnar. Fór þá allt á fullt við undirbúning, svæðið teiknað upp, undirlag sviðs kannað og hljóðkerfi og ljósakerfi hannað.

nattura_010Uppsetning hófst á þriðjudegi fyrir tónleikana og var allt til reiðu á hádegi á
föstudegi þegar hljómsveit Bjarkar Guðmundsdóttur mætti í hljóðprufu.

Tónleikarnir gengu frábærlega þrátt fyrir að mönnum hafi verið örlítið órótt að morgni tónleikadags sökum hvassviðris. Það dróg verulega úr vindinum er leið á kvöldið.

nattura_102Góður rómur var gerður að framgöngu listamannana og allri umgjörð tónleikana.

nattura_142Og hér eru smá tækniupplýsingar fyrir þá sem hafa gaman af slíku.

Hljóðkerfi;
Meyer Milo -24 stk, Meyer M3D -18 stk, Meyer M'elodie -16 stk, Meyer MSL4 -4 stk, Meyer UPJ -4 stk. Nexo PS15 22 stk.

Mixerar;
3 stk Digidesign VENUE, 1 stk Yamaha PM5D, 1 stk Yamaha LS9, eða alls um 120 rásir.

Ljós;
50 stk Martin hreyfiljós, 20 stk Thomas Pixelline. Grand MA Ljósaborð, o.m.fl.

Svið 14x15m.

nattura_131

Við erum líka stoltir af því að 3 starfsmenn Exton eru í starfsliði Sigur rósar; Freyr Vilhjálmsson - ljósahönnuður / ljósakeyrsla , Finnur Ragnarsson - monitorhljóð, Silli Geirdal - trommutæknir.

Verkefnastjórn f.h. Exton var í höndum Ívars Ragnarssonar og verkefnastjórn
tónleikahaldara var í höndum Finns Jóhannssonar og Einars Arnar Benediktssonar.

 

Þú ert hér

sub-cat-banner-barricade

Um Exton

Fréttir

Helstu fréttir af félaginu.
 

Staðsetning

Smelltu hér til að sjá hvar við erum til húsa.
 

Starfsmenn

Við erum ávallt til þjónustu reiðubúin.
 

Verkefni

Helstu verkefni sem við höfum komið að.
 



Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.