Leiga
Sumargleði!
Þrátt fyrir að hásumarið sé oftast rólegasti hluti ársins hér hjá okkur í Exton, hefur verið líf og fjör hér í leigunni.
Í gær voru tónleikar Buena Vista Social Club, á Hlíðarenda. Við önnuðumst öll tæknimál, lýsingu, hljóð og svið. Tónleikarnir heppnuðust frábærlega, fullt hús og sveitt stemmning! Tónleikahaldari var Hr. Örlygur og verkefnastjóri fh Exton, Steinar Snæbjörnsson. Lýsingu annaðist Kjartan Þórisson.
Síðustu helgi fórum við á LUNGA, lístahátíð unga fólksins,Seyðisfirði, og settum upp lokatónleika hátiðarinnar. Meðal hljómsveita voru Bang Gang og Bloodgroup og svo spilaði danski plötusnúðurinn Trentemöller langt inn í nóttina.
Núna um þessa helgi erum við svo á leiðinni á Borgarfjörð Eystri á Bræðsluna. Þar setjum við upp hljóðkerfi og önnumst hljóðblöndun fyrir t.d. Daimien Rice og Eyvör.
Einnig má nefna að um verslunarmannahelgina erum við á Innipúkanum á Nasa með hljóðmenn, ljósamann og sviðsmenn.
Annars erum við á fullu í undirbúningi fyrir tónleika Eric Clapton og er í mörg horn að líta í því samhengi.

