Leiga

Verslunarmannahelgin 2008

11.8.2008

Leigudeildin kom víða við um verslunarmannahelgina, má nefna Ein með öllu á Akureyri þar sem við vorum með sviðsvagn og hljóðkerfi í samvinnu við Hljóðkerfaleigu Akureyrar, einnig vorum við með 12000 ansilum myndvarpa á hátíðinni í samvinnu við N4.

Á Kotmóti Hvítasunnumanna í Fljótshlíð var Meyer Melodie hljóðkerfi, hljóðtæknimaður var Andri Jóhannsson.

Í Húsdýragarðinum var sviðsvagn, hljóðkerfi og ljósakerfi. Yfirumsjón með tæknimálum var í höndum Antons Ívarssonar og tæknimenn voru Gunnar Sigurbjörnsson, Sigurður Ingvar Þorvaldsson og Arnar Tumi Þorsteinsson
HÚSDÝRAGARÐUR 2008
Í Vatnaskógi vorum við með Martin hreyfiljós, Grand MA ljósaborð og Pixeline.
Ljósatæknimaður var Andri Guðmundsson.

Innipúkinn á NASA, sáum við um hljóðmenn, ljósamann og sviðsstjóra einnig sáum við um hljóðfæri.
Tæknimenn voru: Hafþór Karlsson, Aron Arnarsson, Ingi Einar Jóhannesson og Kjartan Orri Sigurðsson.

Önnur verkefni og leigur um verslunarmannahelgina:

Pixeline og sprengjur fyrir Svört föt á Þjóðhátíð í Eyjum.
Einnig hljóðfæri á Þjóðhátíð í Eyjum á aðalsviði
RCF hljóðkerfi í VIP tjaldi á Þjóðhátíð í Eyjum í samvinnu við Practical.
Hljóðkerfi á Fjölskylduhátíð SÁÁ að Hlöðum Hvalfjarðarströnd.
Hljóðkerfi fyrir Veðurguðina

Helgin gekk mjög vel og allir sem að þessum verkefnum komu stóðu sig með stakri prýði.

Golli




 

Þú ert hér

sub-cat-banner-exton

Um Exton

Fréttir

Helstu fréttir af félaginu.
 

Staðsetning

Smelltu hér til að sjá hvar við erum til húsa.
 

Starfsmenn

Við erum ávallt til þjónustu reiðubúin.
 

Verkefni

Helstu verkefni sem við höfum komið að.
 



Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.