Leiga

Menningarnótt 2008

28.8.2008

Leigudeildin var með mörg verkefni á menningarnótt eins og undanfarin ár, má nefna tónleika í Aðalútibúi Landsbankans þar sem við vorum með svið, hljóðkerfi og myndvarpa, tæknimenn: Nick Stagg og Ingi Einar Jóhannesson.

Útitónleikar fyrir Kaupþing í Austurstræti með svið og hljóðkerfi, tæknimaður Sigurður Ingvar Þorvaldsson.

Mark í Lækjargötu fyrir Glitnis maraþon, umsjón: Steinar Snæbjörnsson.

Hljóðkerfi og ljósakerfi fyrir Dansleikhúsið við Gvendarbrunna, tæknimenn: Bjarni Bragi Kjartansson og Halldór Óskarsson.

Báðir sviðsvagnarnir voru í notkun, minni vagninn í Lækjargötu vegn Glitnismaraþon og sá stærri við Háskóla Íslands í Latarbæjarhlaupinu. Umsjón og uppsetning Kristján Á. Gunnarsson

Útitónleikar fyrir veitingastaðinn Við tjörnina, hljóðkerfi og sviðspallar, tæknimaður Ragnar Jónsson.

Hljóðkerfi vegna tónleika fyrir Gestastofu (Portus) við Lækjartorg, tæknimaður Ivar Ragnarsson.

Hljóðbúnaður og skjávarpi vegna stuttmyndahátíðar í Austurbæ.

Margt fleira var í gangi þessa helgi t.d. Háskóli Íslands með hljóðkerfi, ljós fyrir Practical, lýsa upp tónlistarhúsið, hljóðfæri fyrir Dillon, hljóðkerfi fyrir ÍTR við Miðbjarskólann, hljóðfæri í Ráðhúsið, skjávarpar og ljós vegna Landbúnaðarsýningar á Hellu.

Einnig erum við með hljóðkerfi og ljósabúnað vegna 40 ára afmæli Norræna hússins sem stendur til 1.sept.

 

Þú ert hér

sub-cat-banner-exton

Um Exton

Fréttir

Helstu fréttir af félaginu.
 

Staðsetning

Smelltu hér til að sjá hvar við erum til húsa.
 

Starfsmenn

Við erum ávallt til þjónustu reiðubúin.
 

Verkefni

Helstu verkefni sem við höfum komið að.
 



Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.