Leiga
Rótarar Popppunktsmeistarar RÚV
Ingólfur "Golli" Magnússon og Hróbjartur "Hrói" Róbertsson eru ekki bara bestur rótarar sinna kynslóða á Íslandi heldur eru þeir víst gáfuðustu mennirnir í öllum tónlistarbransanum.
Í dag fór fram úrslitarimman í Popppunktskeppni RÚV þar sem fulltrúar úr tónlistarbransanum áttust við. Golli og Hrói, sem kepptu undir merkjum Rótara, mættu Jesúfeðgum, þeim Pétri Erni og Guðmundi Benediktssyni.
Til að gera langa sögu stutta (keppnin tók jú tæpan klukkara) þá sigruðu Rótarar sannfærandi sigur 16 - 10! Golli og Hrói hljóta því nafnbótina Popplandsmeistarar Popppunkts 2008. Til Hamingju strákar...og já það má líka alveg koma fram að þeir vinna báðir hjá Exton!
Mynd af verðlaunaafhendingunni

