Leiga

Singing Bee

17.9.2008

Nýr íslenskur tónlistar- og skemmtiþáttur þar sem reynir á kunnáttu keppenda í söngtextum. Þátturinn er byggður á bandarískri fyrirmynd sem farið hefur sigurför um heiminn.

Basecamp framleiðir þættina fyrir Skjá Einn en Exton sá um sviðsmynd, hljóð og lýsingu. Hrannar Hafsteinsson er verkefnastjóri Exton og sér jafnframt um hönnun og lýsingu, Kjartan Þórisson er ljósamaður og Nick Stagg annast hljóð í sal.

Þegar hafa verið gerðar um 30 útgáfur af þættinum um víða veröld. Keppendur þurfa ekki að kunna að syngja heldur einungis að kunna og fara rétt með texta. Hljómsveitin byrjar að spila og syngja þekkt lag en þegar hljómsveitin hættir eiga keppendur að taka við og fylla í eyðurnar.

Keppnin gengur út á að slá út hvern þátttakandann á fætur öðrum þar til einn stendur eftir og verður Singing Bee meistari kvöldsins.

Hljómsveit þáttarins er hin frábæra Buff en hún er ein vinsælasta ballh-ljómsveit landsins. Það er óhætt að segja að það er erfitt að finna lag sem strákarnir í Buff kunna ekki.

Stjórnanda þáttarins þarf vart að kynna en það er enginn annar en Jón Jósep Snæbjörnsson, betur þekktur sem Jónsi úr hljómsveitinni Í svörtum fötum.

Sýningar hefjast 19. september 2008 og hér má sjá myndbrot



 

Þú ert hér

sub-cat-banner-barricade

Um Exton

Fréttir

Helstu fréttir af félaginu.
 

Staðsetning

Smelltu hér til að sjá hvar við erum til húsa.
 

Starfsmenn

Við erum ávallt til þjónustu reiðubúin.
 

Verkefni

Helstu verkefni sem við höfum komið að.
 



Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.