Leiga
10 ára afmæliveisla Icelandic Airwaves.
Hátíðin var með hefðbundnu sniði og annaðist Exton ehf að vanda tæknimálin.
Athygli vakti í ár frábær frammistaða íslensku listamannana, sem flestir mættu vel undirbúnir til leiks og oftast með leikgleðina að leiðarljósi.
Exton sá um tæknimál á eftirfarandi stöðum:

Listasafn Reykjavíkur.
Í listasafninu settum við upp hljóðkerfi, lýsingu, video og svið.
Hljóðkerfið var frá Meyer, og samanstóð af 16 x Melodie line array boxum og 6 x M3D stefnuvirkum botnum.
Á sviðinu var Yamaha PM5D 48 rása stafrænn mixer, og 16 Nexo PS15 monitorar.
Frammi í sal var Midas H3000 56 rása mixer, með ríkulegu safni af ýmiskonar outboardi.

Hljóðmenn voru Ingvar Jónsson og Hróbjartur Róbertsson.
Lýsing og hönnun lýsingar var í höndum Andra Guðmundssonar.
Notaði hann meðal annars eftirfarandi búnað; Martin MAC 600 og 700 hreyfiljós, Martin Atomic Strobe, Barco SLMR12+ 12.000 ansi lumens myndvarpa. Grand MA ljósaborð og Grand MA Videoserver.
Sviðsstjórar voru Kjartan Orri og Viktor Hólm Jónmundarson.
Á Nasa voru eftirfarandi tæknimenn frá Exton; Nick Stagg og Björgvin Sigvaldason sáu um hljóð, Kjartan Þórrisson lýsti og Bernt Erik Andreassen var sviðsstjóri.
Hljóðkerfi Nasa samanstendur meðal annars af Meyer MSL-4 toppum og Meyer 700HP botnar, sem og EV Plasma P1 monitorum.
Á Iðnó var einnig sett upp hljóðkerfi frá okkur, Meyer MSL-4, Meyer 650-P botnar, Allen&Heath mixer, RCF og Nexo monitorar.
Hljóðmenn voru Finnur Hákonarson og Thorbjörn Knudsen.

Rokkklúbburinn Organ leigði af okkur hljóðkerfi til að nota á Airwaves, settum við þar upp Meyer CQ-1 toppa og Meyer 650-P botna, Allen & Heath GL2400 mixer og RCF 325 monitora.
Hljóðmaður var Þórarinn Ingimarsson og Gylfi Blöndal var sviðsstjóri.
Á Tunglinu var bætt við húskerfið mixer og monitorkerfi frá Exton. Sigurður Ingvar Þorvaldsson mixaði á Yamaha LS-9 digital mixer. Óli Tröllabarn sviðsstýrði.
Hátíðin rann að mestu á áætlun með einhverjum undantekningum þó. Í einu tilviki lentu tæknimenn í handalaögmálum við eitt erlenda bandið sem kom of seint í hús, lét síðan bíða eftir sér og neitaði að lokum að yfirgefa sviðið eftir að þau voru kominn 30 mín inni í tíma næstu hljómsveitar.

Sem betur fer heyrir svona til algerar undantekningar og mæta flestir listamenninnir til leiks með fagmennsku og gleði að leiðarljósi.
Og að lokum;
Að gefnu tilefni viljum við nefna að við sáum ekki um hljóðkerfið á Hressó.

