Leiga
Flugeldasýning hjá Sigurrós!
Lokatónleikar Sigurrósar á heimsferðalagi þeirra voru haldnir í Laugardalshöll 23. nóv.
Exton lagði til megnið af tæknibúnaðinum ss hljóðkerfið og ljósin en einnig kom bandið með nokkur tonn.
Tónleikarnir fóru fram fyrir fullri Höll og heppnuðust afar vel í alla staði.
Hljómsveitin fór á kostum og greinilegt var að þeir eru vel samspilaðir og sönnuðu sig sem ein allra besta tónleikahljómsveit bæði nær og fjær.
Hljóð á tónleikunum var mjög gott en maður kvöldsins að öðrum ólöstuðum var án efa Kjartan Freyr Vilhjálmsson ljósahönnuður og er mál manna að hans framlag hafi verið alveg frábært.
þess má geta að Kjartan Freyr er starfsmaður Exton;)

Hljóðkerfi var Meyer Milo, mixerar frá Digidesign. Ljós voru Martin Mac 600, Martin Mac 700, Martin Mac 250 wash og margt fleira.
Einnig var Grand MA fullsize borð Exton notað í fyrsta sinn hér á landi en það var sérstaklega keypt fyrir Sigurrósar túrinn.
Annar búnaður: Barco R12+ 12000 lum, Catalist, Airstar, Waterscreen ásamt mörgu öðru.
Verkefnastjóri fh Exton: Agnar Hermannsson,
Umsjón með hljóðbúnaði: Nick Stagg.
Tónleikahaldari; Ambulant Entertainment/Kári Sturluson.

