Leiga
Torrini í toppformi!
Það má með sanni segja að Emiliana Torrini hafi brætt hjörtu áhorfenda með tvennum frábærum tónleikum fyrir fullu Háskólabíói.
Hún mætti til leiks með breski/íslenska hljómsveit sína og var greinilegt að allir voru mættir til að gera frábæra tónleika. Emiliana reytti af sér brandara og sögur þess á milli sem hún flutt lög sín af mikilli næmni og innlifun.
Söngkonan Lay Low byrjaði tónleikana með frábærum og hlýjum flutningi á nokkrum lögum, flestum af hinni frábæru hljómplötu "Farewell Good Night´s Sleep"
Markmið tæknimanna Exton á þessum tónleikum var að sanna eitt skipti fyrir öll að að Háskólabío er besti tónleikasalur landsins.
Agnar Hermannsson hannaði sviðsmynd og lýsingu og fór sannarlega á kostum, og var almennt gerður góður rómur að framlegi hans.
Og í eitt skipti fyrir öll sannaði Meyer M´elodie line-array kerfið að það er ekki til réttara eða betra kerfi fyrir þennan sal.
Ljós/Ljósahönnun/Sviðsmynd
Agnar Hermannsson.
Ljósaborð; GrandMA-Fullsize, ljós; Martin MAC 600 og 700 og margt fleira.
Hljóð
Meyer M´elodie, Meyer 650-P, Meyer UPM, Yamaha PM5D, Yamaha PM3500M og Nexo monitorar.
Monitor mix Finnur Ragnarsson
System Tech Ivar Ragnarsson
Tónleikahaldari: Ambulant Entertainment/Kári Sturluson.

