Leiga
Vel heppnaðir landsfundir
Nú um helgina voru haldnir landsfundir Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar og tókst tæknilega vel til í alla staði.
Sjálfstæðisflokkurinn 26. - 29. mars
38. landsfundur Sjálfstæðisflokksins var í Laugardalshöll. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður flokksins, kynnti myndband sem gert hefur verið í tilefni 80 ára afmælis flokksins. Að sýningu þess lokinni flutti Geir H. Haarde, fráfarandi formaður Sjálfstæðisflokksins, setningarræðu sína. Bjarni Benediktsson var kjörinn nýr formaður flokksins og Þorgerður Katrín var endurkjörinn varaformaður.
Exton sá um öll tæknimál á fundinum; hljóð-, lýsingu og myndvinnslu.
Netstreymi var einnig í höndum Exton undir styrkri stjórn Gunnars K. Steinarssonar. Smelltu hér til að skoða upptökur frá fundinum.
Verkefnastjóri var Hrannar Hafsteinsson.
Samfylkingin 27. - 29. mars
Landsfundur Samfylkingarinnar var haldinn í Smáranum í Kópavogi.
Jóhanna Sigurðardóttir var kjörinn formaður Samfylkingarinnar og Dagur B. Eggertsson hafði betur í baráttunni við Árna Pál Árnason um varaformannsstólinn.
Exton sá um öll tæknimál á fundinum; hljóð-, lýsingu og myndvinnslu.
Netstreymi var einnig í höndum Exton. Fjölmargar upptökur frá fundinum má finna á vef Samfylkingarinnar.
Verkefnastjóri var Agnar Hermannsson.

