Leiga

Martin, Meyer og Barco í Eurovision

14.5.2009

Öll helstu vörumerkin sem Exton hefur umboð fyrir koma við sögu í Eurovision í Moskvu.

Sviðsmyndin í ár er að öllu leiti byggð á LED skjám og þar fara lausnir frá Martin og Barco fremstar í flokki. Martin LC panelar mynda þannig 1.120 m2 og blandaðar lausnir frá Barco (MiPix, OLite o.fl.) eitthvað annað eins.

Hljóðkerfið í salnum kemur frá Meyer og er sömu tegundar (Meyer Milo, Meyer M'elodie) og við hjá Exton eigum og leigjum út. Þá eru borðin öll frá Yamaha sem er einnig á listanum yfir umboðin okkar.

Að lokum má geta þess að ljósastýringarnar eru frá Grand MA, sömu gerðar og við eigum og notuðum t.a.m. á síðasta hljómleikaferðalagi Sigur rósar.

Fyrir áhugasama má lesa ýmislegt um tæknimál keppninnar hér



 

Þú ert hér

sub-cat-banner-exton

Um Exton

Fréttir

Helstu fréttir af félaginu.
 

Staðsetning

Smelltu hér til að sjá hvar við erum til húsa.
 

Starfsmenn

Við erum ávallt til þjónustu reiðubúin.
 

Verkefni

Helstu verkefni sem við höfum komið að.
 



Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.