Leiga
Sjómannadagshelgin
Leigudeild Exton kom að mörgum verkefnum um Sjómannadagshelgina.
Má þar nefna Hátíð Hafsins á vegum Reykjavíkurborgar þar sem við vorum með hljóðkerfi, hljóðfæri, minni sviðsvagninn og LED skjáinn ásamt mörgum minni tækjum. Verkefnastjóri var Hrannar Hafsteinsson og með honum voru Ingvar Jónsson hljóðmaður, Andri Guðmundsson ljósa- og videostjóri og Kjartan Þórisson tæknimaður.
Á NASA voru tónleikar Dúndurfrétta ásamt landsliði karlsöngvara haldnir fyrir fullu húsi. Þar voru Sigurður Geirdal hljóðmaður, Ingvar Jónsson monitor hljóðmaður og Agnar Hermannsson ljósamaður.
Í Grindavík vorum við með hljóðkerfi og ljós á Sjóaranum Síkaáta í samstarfi við Prime. Tæknimenn voru Björgvin Sigvaldason hljóðmaður og Viktor Jónmundarson sviðsstjóri.
Einnig vorum við með ljós og hljóð á Sjómannadagsballi í íþróttahúsi Grindavíkur með hljómsveitinnni Skítamóral. tæknimenn þar voru Agnar Hermannsson ljósamaður, Árni Ólasson hljóðmaður og Ingó Möller rótari.
Í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði vorum við með svið, hljóðkerfi og ljós á balli með Egó og Pöpunum í samstarfi við Prime. Tæknimenn voru Páll Arnar Guðmundsson ljósamaður, Sigurður Geirdal hljóðmaður, Viktor sviðsstjóri og Gunnar Sigurbjörnsson hljóðmaður.
Veðurguðirnir voru með Meyer CQ hljóðkerfi á balli á Skagaströnd. Björgvin Sigvaldason stýrði hljóði þar.
Megas og senuþjófarnir voru svo með Meyer hljóðkerfi á Café Rosenberg.
Á sunnudeginum vorum við loks með hljóðkerfi á útitónleikum á Thorsplani í Hafnarfirði. Hljóðmaður var Andri Jóhannsson og sviðsstjóri Páll Sveinbjörnsson.

