Leiga
Emiliana Torrini í Háskólabíói.
Emiliana Torrini í Háskólabíói.
Um nýliðna helgi hélt Emiliana Torrini þrenna tónleika fyrir troðfullu Háskólabíói.
Voru þetta lokatónleikar hennar á 14 mánaða löngu tónleikaferðalagi víða um heim, en tónleikaferð þessi hófst á sama stað.
Emiliana og hljómsveit voru í frábæru formi og töfruðu fram hvert eyrnakonfektið á fætur öðru.
Sérstakir gestir Emiliönu á þessum tónleikum voru þau Joe Worricker og argentínska kvikmyndastjarnan Mia Maestro .
Sviðsmynd, lýsing og hljóð önnuðust Exton ehf og tónleikahaldari var Kári Sturluson.
Agnar Hermannson hannaði lýsingu og sviðsmynd.











