Leiga

Nýjustu fréttir og líka bara gamlar.....

22.6.2010



Það skal viðurkennt að við höfum aðeins misst taktinn hér á fréttastofu Exton með tilkomu Facebook.

Hérna er þó smá yfirlit yfir það sem við höfum verið að gera hér síðustu mánuðina, sem og nokkrar myndir.

Af uppsetningardeildinni er það að frétta að menn eru á fullu í uppsetningu hljóði, ljósum og flugbúnaði í menningarhúsinu HOF á Akureyri, sem og í tónlistarhúsinu Hörpu, en þar eru menn komnir langleiðina með lagnir í ljós og hljóð.

Af leiguni má nefna eftirfarandi verkefni:

Af tónleikum má nefna;

Hjaltalín og Sinfóníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói. (Lýsing, hljóð og sviðsmynd.)
Áfram Latibær-tónleikar í Laugardalshöll. (Lýsing, hljóð og sviðsmynd)
Mannakorn- Afmælistónleikar í Háskólabíói. (Lýsing og hljóð)
Megas- Tónleikar á listahátíð-Háskólabíói. (Lýsing og hljóð)
Eyvör ? Útgáfutónleikar í Íslensku óperuni. (Lýsing og hljóð)
Söngvakeppni félags framhaldsskóla- Íþróttahöllini Akureyri. (Lýsing, sviðsmynd, video, hljóð í sal og útsendingu)

Af öðrum viðburðum má nefna;

Útskrift Háskóla Íslands -Laugardalshöll.
Sjóarinn Síkáti -Grindadvík.
1.mai hátíðarhöld -Reykjavík.
Hátíð hafsins -Reykjavík.
Blaðamannafundur vegna rannsókanrskýrslu.
Árshátíðir Símans, Vodafone, KB og Glitnis.

Núna um nýliðna helgi má nefna 17. Júní hátíðarhöld í Reykjavík (Austurvöllur og Arnarhóll) Kópavogi og Hafnarfirði. Á þessa staði settum við upp svið og hljóðkerfi og að auki lýsingu á Arnarhóli.

Vonandi verður meiri hugur í fréttastofuni á seinni hluta árssins, og menn aðeins duglegri.

A_hjaltalin_sinfo_2

Hjaltalín og Sinfó.A_Jonsi_og_Bajo-latibaAr

LatibærA_01.mai1. mai.A_altings

Rannsóknarskýrsla, blaðamannafundur.A_Lokaposa3_latibar

Latibær.A_mannakornMannakorn.A_megas

MegasA_skffSöngvakeppni FF.

 

Þú ert hér

sub-cat-banner-exton

Um Exton

Fréttir

Helstu fréttir af félaginu.
 

Staðsetning

Smelltu hér til að sjá hvar við erum til húsa.
 

Starfsmenn

Við erum ávallt til þjónustu reiðubúin.
 

Verkefni

Helstu verkefni sem við höfum komið að.
 



Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.