Leiga
Inspired by rain....
...eða mér finnst rigningin góð....
Um nýliðna helgi vorum við Extonmenn á ferð og flugi að vanda.
Á fimmtudaginn fóru fram INSPIRED BY ICELAND tónleikar. Upphaflega stóð til að tónleikar þessir færu framá Hamragörðum, við Seljarlandsfoss.
Degi fyrir tónleika var ljóst að það mundi ekki ganga upp sökum veðurs, og ákveðið var að flytja tónleikana í Hljómskálagarðinn í Reykjavík.

Upphaflega áætlunin hafði verið að gera tónleikana á tveimur sviðum, stóru og litlu. Horfið var frá því, og ljóst var að keyra þyrfti tónleikana ansi þétt!
En til að gera langa sögu stutta vorur þetta ansi blautir tónleikar, það ringdi látlaust frá morgni til kvölds og stytti ekki upp fyrr en um kl 22.
Sviðsstjórn og sviðsmenn, Steinar Snæbjörnsson, Björgvin Sigvaldason og Jóhann Rúnar. Hljóð Ivar Ragnarsson og Finnur Ragnarsson.
-----
Einnig vorum við með svið, hljóðkerfi, lýsingu og barricade á Bestu Útihátíðinni, Galtalæk.
Til þess að tryggja að meistarverk þýska snillingsins Scooter nytu sín sem best voru notaðir 18 Meyer M3D bassar, en það eru alls 72 stk 18" og 15" keilur og samtals 35þúsund vött! Semsagt ólgandi bassi!

Og til að trygga endalega andlegt heilbrigði gesta voru einnig notuð 20 Martin atomic strobe, semsagt .....

Ljósamenn voru Haraldur Ási, Gísli Berg og Ísak Bjarnasson. Hljóðmenn voru feðgarnir Gunnars Sigurbjörnsson og Einar Karl Valmundsson. System tech Anton Ívarsson og sviðsstjóri, Steinar Snæbjörnsson.

