Leiga
M-Nótt 2010
Menningarnótt er ár hvert einn af stóru dögunum í dagbók Exton, og árið í ár var engin undantekning.
Hæst bar Tónaflóð, stórtónleikar Rásar 2 og Exton
.

Í ár sem og síðasta ár annaðist Exton alla framkvæmd tónleikana.
Heppnuðust tónleikarnir í flesta staði vel og er talið að um 60-70þúsund manns hafi verið þegar mest var.
Verkefnastjóri tónleikanna var Hrannar Hafsteinsson , lýsingu annaðist Gísli Berg, myndvinnsla Eggert Gunnarsson/Þorleifur Gíslason.
Hljóð Ívar Ragnarsson og Björgvin Sigvaldason. Sviðstjórn Viktor Hólm og Kjartan Orri.
Meðal annarra verka má nefna mark Reykjavíkur-maraþonsins, sem og hljóðkerfi og svið við markið.

Einnig má nefna mörk fyrir Latabæjarmaraþonið, dagskrá í aðalaútibúi Landasbankans, hljóðkerfi og svið í Íslandstjaldi ferðamálaráðs ásamt stærri og smærri búnaði viðsvegar um borgina.

Að lokum má nefna Alþjóðlega kórahátið í Laugardalshöll þar sem ma. kom fram 2000 manna kór.

