Leiga
Fréttabréf Exton, Júní.
Júní mánuður er líklega einn umsvifamesti mánuður frá hruni í leigunni.
Hæst bera að sjálfsögðu að nefna bandarísku hljómsveitina Eagles sem hélt tónleika 9.júní í Laugardalshöll.
Hrannar Hafsteinsson verkefnastýrði þeim, Kári Eyþórsson var yfir hljóðtæknimálum og Orri Rósenkranz sá um ljósatæknimál, tónleikarnir tókust afar vel og samspil Exton og Senu með Ísa í fararbroddi er orðin eins og vel smurð vél.
Einnig sáum við um tónleika Páls Óskars og Sinfóníuhljómsveitar íslands í Hörpu, fimm tónleika sem tókust afar vel, Agnar Hermannsson, Garðar Þór Eiðsson og Ívar Ragnarsson sáu um tæknimál.

Agnar sá einnig um lýsingu á Cindy Lauper og Jamie Cullum, og Freyr Kjartansson lýsti Afrocubisim í Eldborgar sal Hörpu.
Síðan var leigan með tæki og tól fyrir æfingar Bjarkar Guðmundsdóttur fyrir sk Biofilia túr . Finnur Ragnarsson sá alfarið um það og einnig verður hann monitor mixer maður á túrnum.
Á Þjóðhátíðardaginn vorum við með svið, hljóð og ljós í Kópavogi sem Hróbjartur Róbertsson og Finnur Hákonarson stýrðu, svið og hljóðkerfi í Hafnarfirði sem Sveinn Ómar Grétarsson sér alfarið um og með honum var Jóhann Rúnar, hljóðkerfi á Ráðhústorginu á Akureyri sem Gunnar Sigurbjörnsson og Tómas Sævarsson stýrðu af stakri snilld.
Einnig vorum við með útskrift Menntaskóla Akureyrar í íþróttahöllinni fyrir norðan þar sem tæknimenn Exton voru Águst Pálsson og Kristófer Knutsen, síðan en ekki síst vorum við með hljóðkerfi og stúku við Austurvöll fyrir Reykjavíkurborg.
Einnig var fjöldin allur af smærri verkefnum.

