Leiga
Afmælistónleikar Kaupings á Laugardalsvelli
Tugir þúsunda mættu á Laugardalsvöllinn föstudagskvöldið 17. ágúst, til að fagna með Kaupþingi 25 ára afmæli bankans. Páll Óskar Hjálmtýsson stóð í stafni og stýrði gleðinni, en fjölmargir tónlistarmenn tróðu upp.

Framleiðandi tónleikanna var Concert með Einar Bárðarson í fararbroddi.
Exton sá um að reisa 140m2 svið á vellinum og hlaða það hreyfiljósum og öðrum búnaði. Hljóðkerfin voru tvö - Meyer MILO í FOH og Meyer M'elodie í Delay fyrir stúkuna.

Þá var 22m2 risaskjá frá Barco stillt upp við hlið sviðsins en þar gátu gestir í dalnum séð listamennina í nærmynd.
FOH hljóð : Ívar Ragnarsson
Monitor : Ingvar Jónsson
System Tech: Nick Stagg
Ljósameistari : Hrannar Hafsteinsson
Sviðsstjóri : Sigurður Geirdal
Verkefnastjórn Exton : Hrannar Hafsteinsson / Agnar Hermansson

