Leiga
Jólin, jólin allstaðar.

Síðastliðin helgi var annasöm fyrir hljóðmenn Exton. Ekki vegna fjölda verkefna, heldur vegna stærðar tveggja þeirra.
Annarsvegar vorum við með Jólatónleika Björgvins Halldórsonar og hinsvegar með jólatónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á Akureyri.
Jólatónleikar Björgvins voru haldnir í Laugardalshöll dagana 8. og 9. des, alls þrennir tónleikar fyrir fullu húsi.
Að vanda var notað Meyer Milo line array hljóðkerfi fyrir salinn, 22 Nexo Ps 15 monitorar, Midas Heritage 56 rása, Yamaha PM3500 52 rása og Allen and Heath ML-4000 32 rása sem og Yamaha PM3500M 56 rása monitormixer. Alls voru rásirnar um 160.
Hljóðblöndun önnuðust Gunnar Smári Helgason, Haffi Tempó, Sigurvald Ívar Helgason og Ingvar Jónsson.
Umsjón með uppsetningu og stillingu hljóðkerfis hafði Nick Stagg, ásamt Björgvini Sigvaldasyni og Antoni Ívarssyni.
Hljómburður kerfissins var fínstilltur með "Meyer Galileo" system-controller með aðstoð "Meyer SIM", hljóðtölvu.
Sviðsstjórn var í höndum Ingólfs Magnússonar og Gústa Rót.
Tónleikahaldari var Sena ehf, lýsing, svið og myndband Sagafilm, hljóðupptaka Stúdío Sýrland.
Einnig vorum við á Akureyri með jólatónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Tónleikarnir voru haldnir í íþróttahöllinni og var Garðar Thor Cortes sérstakur gestur. Stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson.
Tónleikarnir voru haldnir á laugardeginum fyrir fullu húsi.
Hljóðkerfi var "Meyer M'elodie" line array og mixað var á Yamaha PM5D stafrænan hljóðmixer.
Einnig sá Exton um lýsingu og mynd.
Hljóðblöndun og umsjón með hljóðkerfi; Ívar Ragnarsson og Kári Eyþórsson.
Lýsing og mynd; Andri Guðmundsson.
Tónleikahaldari var Íþróttafélagið Þór.

