Leiga
Mugison á Íslandstúr 2007
Hinn ástsæli söngvari og tónlistamaður Mugison hefur nýlega lokið tónleikaferð sinni um Ísland, til kynningar á sinni frábæru plötu, MUGIBOOGIE.
Að sjálfsögðu hafði Mugison samband við tækjaleigu Exton og bað okkur að setja saman hljóðkerfi sem hentaði öllum þeim misstóru stöðum sem hann hafði bókað fyrir ferðina.
Fyrir valinu urðu Meyer CQ toppar, Meyer 650-p botnar, NEXO PS-15 monitorar og Allen&Heath mixerar. Hljóðmaður Mugison í þessari ferð var Páll Einarsson.

Mugison á Nasa / Airwaves 07

