Leiga

Jólaglögg Exton 2007

22.12.2007

Löng hefð er orðin fyrir jólaglöggi Exton og er þetta að vissu leiti orðið að jólahátíð "Bransans"!

Í ár mættu hátt í 300 manns á Glöggina, sem að venju var haldinn á leigulager Exton.

Á barnum stóðu framkvæmdastjórarnir Jolli & Golli og skenktu veglega í glös viðstaddra.

jolli og golli

Sem fyrr fór skreytinganefnd hamförum, þó svo að hreinsitæknar (sem og kvenkynsgestir) kynnu Hrannari litlar þakkir fyrir salernislýsinguna.

Boðið var uppá hefðbundna dagskrá, svo sem hina ómissandi túlkun Freys Vilhjálmssonar á lagi Gylfa Ægissonar um söng blökkukonunar freyr_bjoggi

og svo hjartnæmur flutningur Tröllabarnsins á laginu um kettlingana.

trollabarnEinnig komu við sögu nýjir skemmtikraftar eins og Siggi Bahamas með stórkostlegan taktkjaft og Mugison ásamt hljómsveit.

mugisonMilli atriða spilaði DJ TonY Trukkur lög af grammófónplötum, og var gerður góður rómur af.

Er fór að líða inní nóttina voru þeir alhörðustu fluttir í langflutningabíl á ónefnda knæpu í miðborginni og fréttist af þeim síðustu þar um fimmleitið.

Kunnum við öllum sem litu við hinar bestu þakkir og sjáum við vonandi alla að ári.


 

Þú ert hér

sub-cat-banner-exton

Um Exton

Fréttir

Helstu fréttir af félaginu.
 

Staðsetning

Smelltu hér til að sjá hvar við erum til húsa.
 

Starfsmenn

Við erum ávallt til þjónustu reiðubúin.
 

Verkefni

Helstu verkefni sem við höfum komið að.
 



Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.