Leiga
Megavika Exton!
Úrslit laugardagslaga, Þursflokkurinn og fleira.
Dagskrá laugardagsins 23. febrúar var ansi þétt skipaður hjá leigudeild Exton.
Og þrátt fyrir nýlega viðbót uppá 50 kílómetra af kopar, til að mæta þéttbókaðri dagská okkar, má segja að hver einasti kapall leigunnar hafi verið notaður.
Stærstu verkefnin voru úrslitaþáttur Laugardagslaganna, undir styrkri stjórn Hrannars Hafsteinssonar, en þar annaði Exton ma. hönnun og smíði sviðsmyndar, lýsingu og hönnun lýsingar, hljóðkerfi og hljóðstjórn í sal, myndvinnslu á videoskjái og tjöld sem og uppsetningu á þeim.
Sviðsmynd og lýsing; Hrannar Hafsteinsson og Gísli Berg, videó Páll Arnar Guðmundsson og hljóð Axel ´Flex' .

Verkefnið var unnið í samvinnu við RUV og Basecamp.
![]()
Einnig tókum við yfir báða sali Laugardalshallarinnar. Í gömlu höllinni önnuðumst við öll tæknimál, að myndatöku undanskilinni, á stórglæsilegum tónleikum Þursaflokksins og Caput.

Hljóðblöndun var í höndum Gunnars Sigurbjörnssonar og Ingvars Jónssonar, sviðshljóð Ívar Ragnarsson, lýsing Freyr Vilhjálmsson, sviðsstjórn Sigurður Geirdal og verkefnastjórn fyrir hönd Exton, Agnar Hermannsson / Ívar Ragnarsson. Tónleikahaldari var Concert ehf undir stjórn Ísleifs Þórhallsonar.
Í nýja sal Laugardalshallarinnar hreiðruðum við einnig um okkur, með árshátið Póstsins, þar sáum við um ljós, hljóð, svið, video, drapperingar og sviðsstjórn.
Meðal atriða þar voru Garðar Thor Cortes, Páll Óskar og Á móti sól. Verkefnastjóri Exton var Steinar Snæbjörnsson, lýsing Árni Benidiktson, hljóð Nick Stagg/ Björgvin Sigvaldason og sviðsstjórn Guðmundur Erlingsson.
Einnig má nefna að við önnuðumst einnig árshátíð Þyrpingar, hljóð á kokkakeppni Food and Fun, móttöku fyrir VBS, hljóðkerfi fyrir Dejong AV - Hollandi, hljóð og mynd á fundi fyrir Póstinn, hljóðkerfi og backline á tónleikunum "Bræður og Systur" í Austurbæ, backline fyrir Hayseed Dixe á Nasa, og svo ýmsilegt annað smálegt til viðbótar!
Semsagt líf og fjör hjá okkur! Í heildina annasöm vika, sem gekk frábærlega. Lykillinn; góð skipulagning og frábærir starfsmenn og verktakar (á fimmta tug á laugardeginum!).

