Helstu birgjar
NTi Audio AG
NTi Audio AG er leiðandi í gerð hágæða mælitækja fyrir atvinnumenn í hljóði, hvort heldur er hjá hljóðleigum, leikhúsum, sjónvarps og útvarpsstöðvum eða fjarskiptafyrirtækjum.
Einnig hafa fjölmargir framleiðendur búnaðar fyrir fyrrgreinda markaði fjárfest í mælitækjum frá NTi Audio til að nota við rannsóknir og eftirlit með framleiðslu sinni.
NTi Audio byggir á yfir 30 ára reynslu í framleiðslu á mælitækjum og hefur í boði smágerð handmælitæki sem og stærri búnað í rannsóknarstofur og verkstæði.

