Helstu birgjar
QSC
Hear The Power Of Technology
QSC Audio er þekktast fyrir áratuga langa framleiðslu magnara fyrir atvinnumenn. Margar helstu hljóðkerfaleigur heimsins hafa knúið kerfi sín með mögnurum frá þeim.
Nú eru magnaralínur þeirra nokkrar og spanna allt frá hagkvæmum mögnurum fyrir smærri hljóðkerfi(GX og RMX) upp í sérhæfðari magnara, eins og DCA fyrir kvikmyndahús, ISA og CX fyrir hljóðkerfi í stofnanir og fyrirtæki, og PLX2 og PL fyrir öflugri hljóðkerfi til tónleikahalds.
Fyrirtækið hefur á síðari árum fært út kvíarnar og hefur þróað línur hátalara, bæði með og án innbyggðra magnara sem og að hanna og smíða stafrænar hljóðstýringar.
Exton hefur á síðari árum notað magnara, hátalara og hljóðstýringar frá QSC Audio í fjöldamörg verkerfni.
Exton er umboðsaðili fyrir QSC hljóðtæknivörur.

