Helstu birgjar
Allen Heath
Allen & Heath eru vel þekktir fyrir hljóðblöndunarborðin sín sem hafa þjónað eigendum sínum vel í gegnum tíðina.
Fyrirtækið hefur lagt sig fram um að skila sem bestum hljóðgæðum og áreiðanlegri smíði á verðum sem hæfa flestum.
Wizard línu mixerar eru til í nánast öllum hljóðleigum hérlendis, auk fjölmargra GL línu mixera.
Á síðari árum hafa þeir unnið sér sess með XONE mixerum fyrir plötusnúða og svo hafa þeir einnig þróað stafrænan hljóðblöndunarbúnað, iLive.
Allen & Heath eru engir nýgræðingar í stafrænni tækni því Exton hefur til margra ára selt stýringar úr iDR línunni auk notendaviðmóta úr PL línu þeirra.
Exton er umboðsaðili Allen & Heath á Íslandi.

