HLJÓÐKERFI
Við bjóðum upp á leigu á hágæða hljóðkerfum frá Meyer Sound Laboratories, RCF, og NEXO. Valið hverju sinni fer eftir eðli verkefnisins og þörfum viðskiptavinarins.
Meyer Ultra-X40
Meyer Leopard Line Array
Meyer Lyon
NEXO PS15-R2
HLJÓÐBLÖNDUN OG STÝRINGAR
Tækjaleiga Exton býður upp á fjöldan allan af mixerum í mörgum stærðum. Við aðstoðum við val á borði sem hentar hverju verkefni fyrir sig.
Okkar helstu samstarfsaðilar í mixerum eru Allen & Heath og Midas Consoles.
HLJÓÐNEMAR
Exton útvegar alla hljóðnema fyrir viðburðinn:
- Allar gerðir þráðlausra hljóðnema; Sönghljóðnemar, næluhljóðnemar og spangarhljóðnemar
- Hljóðnemar á trommusett, gítarmagnara, flygla, strengjahljóðfæri o.fl.
- Púlthljóðnemar
Við eigum hljóðnema frá Shure, Audix, DPA, Sennheiser, AKG, Mipro og ýmsum fleirum.